Áhrifin sem spurt er um í þessu svari eru kennd við Coriolis og eru stundum kölluð Corioliskraftur en einnig er talað um svigkraft. Hér er þó ekki um neinn raunverulegan kraft að ræða heldur aðeins áhrif sem stafa af því að atburðir eru skoðaðir frá sjónarhóli jarðarinnar sem er ekki kyrr heldur snýst.
Auðveld...
Fallhlífar um borð í geimförum sem lenda á Mars gegna því veigamikla hlutverki að draga úr hraða geimfarsins þegar það kemur inn til lendingar. Fallhlífin er ekki notuð í þyngdarleysinu úti í geimnum, heldur stuttu eftir að geimfarið kemur inn í lofthjúp plánetunnar, en þar er ekki þyngdarleysi.
Lesendur Vísin...
Hér er einnig svar við spurningunni:Hvaða áhrif hefði eldgos í Bláfjöllum á höfuðborgarsvæðið?
Ef eldgos kæmi upp í Bláfjöllum myndi það að öllum líkindum tengjast basískri kviku en það er sú bráð sem alla jafna myndar hraun og litla gosmekki. Ætla má að í byrjun yrði gosið öflugt sem gæti leitt til þess að flugu...
Í veðurskeytum er talað um þoku sé skyggni innan við einn km, en jafnframt úrkomulaust og hvorki skafrenningur né sandfok. Þokan sem oft liggur yfir Austur-Íslandsstraumnum undan nesjum á Austfjörðum er gjarnan nefnd Austfjarðaþoka.
Austur-Íslandsstraumurinn er tunga af köldum sjó sem liggur til suðurs meðfram...
Hér á landi hagar þannig til að mestan hluta ársins er sjórinn úti fyrir ströndum landsins hlýrri heldur en loftið. Það er aðeins um stuttan tíma á sumrin sem þetta snýst við. Lóðréttur þáttur sjávarhringrásar veldur því að meira kemur að landinu af sjó suðrænnar ættar heldur en norrænnar, á vetrum er það sjór sem...
Stærstu jöklar á Íslandi eru á miðju og sunnanverðu landinu vegna þess að þar fellur meiri snjór en nær að bráðna á sumrin. Rakir vindar á leið yfir Norður-Atlantshaf lyfta upp lofti á leið yfir Ísland. Loftið kólnar og rakinn í því þéttist og verður að vatnsdropum og ískristöllum sem falla til jarðar. Snjór fellu...
Sahara er stærsta eyðimörk heims, rúmlega níu milljónir ferkílómetrar að flatarmáli, eða um 87 sinnum stærri en Ísland. Eyðimörkin nær yfir mestalla Norður-Afríku.
Í Sahara rignir afar sjaldan, oftast ekki nema um 130 mm á ári og sumstaðar aldrei. Eyðimörkin er þess vegna að mestu leyti ógróin sandauðn. Hitasve...
Ef allir jöklar, þar með talinn Grænlandsjökull og Suðurheimskautsjökullinn bráðnuðu má reikna með að yfirborð sjávar mundi hækka um tæpa 69 metra. Framlag Suðurheimskautsjökulsins er þar langmest, eða um 61 metri, en Grænland legði til rúma 7 metra. Framlag allra annarra jökla yrði vel innan við einn metri. Á nor...
Júpíter er vinda- og stormasöm reikistjarna. Svæðisvindar eru sterkastir í vindröstum, það er á mörkum belta og svæða, sem lofthjúpur Júpíters skiptist í. Þar fer vindhraðinn yfir 140 m/s. Vindhraði sem þessi er ekki endilega tímabundinn eins og hér á jörðinni og getur jafnvel varað í nokkur hundruð ár.
Lofthjú...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvaða þættir eru ráðandi í vexti plöntusvifs á íslenska hafsvæðinu og að hvaða leyti er hafsvæðið frábrugðið hér við land en á svipuðum breiddargráðum?
Það sem helst ræður þeim þörungablóma sem verður á grunnsævinu við landið og öðrum svæðum í Norðaustur-Atlantshafi og sambæril...
Já, það eru ský á Mars, allt árið um kring. Skýin er jafnvel hægt að greina frá jörðinni með stjörnusjónauka.
Loftþrýstingurinn við yfirborð Mars er einungis 7 millibör eða um 144 sinnum lægri en loftþrýstingur jarðarinnar. Andrúmsloft Mars er þó greinilega nógu þétt til að bera veðrakerfi því þar eru ský og vi...
Upprunalega spurningin var:
Hvernig var veðrið allt árið 1918, ekki bara frostaveturinn?
Þegar ársins 1918 er minnst í Íslandssögunni þá eru nokkrir atburðir sem iðulega eru nefndir og þá helst að landið varð fullvalda, Katla gaus og spánska veikin herjaði á landsmenn. En ársins er líka minnst fyrir veðurfa...
Þessari spurningu verður best svarað í verki, það er að segja með því að útskýra í stuttu máli nokkra helstu þættina í heimspeki þýska hugsuðarins Martins Heideggers (1889–1976), en í öðru svari er fjallað nánar um hvað felist í orðinu mannamál.
Í skrifum sínum og hugsun reyndi Heidegger einmitt að streitast ge...
Ókyrrð eða kvika er óregluleg hreyfing lofts og þá er yfirleitt átt við lóðrétta hreyfingu. Þar sem loftið í háloftunum er þurrt og það er lítið um ský er loftið að jafnaði tært og ókyrrðin ósýnileg þótt hún sé áþreifanleg. Þess vegna er ókyrrð í háloftum kölluð heiðkvika, á ensku clear air turbulence, skammstafað...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Er það rétt að kólnandi sjór taki til sín CO2 og hlýnandi sjór skili honum frá sér, er það rétt eða rangt?
Allar lofttegundir sem eru í andrúmsloftinu leysast upp í sjó að einhverju marki og almennt er leysni hverrar þeirra meiri við lágan sjávarhita en háan.
Styrkur...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!